17.02.2010
Í minningu Ármanns Snćvarr

Hinn 15. febrúar sl. lést hinn mikli lögfræðingur og brautryðjandi, dr. juris Ármann Snævarr. Ljóst er að Ármann var einn okkar virtasti fræðimaður á sviði lögfræði. Ármann gaf út tvö viðamikil fræðirit á vegum bókaútgáfunnar, annars vegar ritið Almenn lögfræði og hins vegar ritið Hjúskapar- og sambúðarréttur. Bókaútgáfan mun ávallt minnast Ármanns með miklum hlýhug og virðingu fyrir framlag hans í þágu lögfræðinnar.

Í því skyni að heiðra minningu Ármanns hefur bókaútgáfan ákveðið að veita Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr fjárframlag að fjárhæð kr. 200.000 sem og eitt eintak allra útgefinna rita bókaútgáfunnar. Er það einlæg von bókaútgáfunnar að starfsemi stofnunarinnar vaxi og dafni, þannig að nafni Ármanns verði haldið á lofti um ókomna tíð. 

Bókaútgáfan vottar eftirlifandi eiginkonu Ármanns og fjölskyldu hans innilega samúð vegna fráfallsins.


Til baka
27.08.2010
Hvatningarverđlaun Bókaútgáfunnar Codex
17.02.2010
Í minningu Ármanns Snćvarr
9.02.2010
Mannréttindasamningar Sameinuđu ţjóđanna